Glamour

Will & Grace snýr aftur á sjónvarpsskjáinn

Ritstjórn skrifar
Þættirnir Will & Grace sem slógu í gegn í kringum aldamótin um allan heim munu snúa aftur í haust. Leikarinn Leslie Jordan sem fór með hlutverk Beverley Leslie í gamanþáttunum staðfesti það í viðtali við ET Online. 

Hann sagði að þættirnir yrðu líklega teknir upp í júlí á þessu ári og fara í sýningu í haust. Það eru líklegast margir sem munu bíða spenntir eftir nýju þáttunum enda voru þeir afar vinsælir frá því að þeir fóru í sýningu árið 1998 til ársins 2006. Samkvæmt Leslie munu þættirnir verða tíu talsins. 

Líklegt er að framleiðendur þáttanna eru að reyna að vinna á nostalgíu áhorfenda líkt og Gilmore Girls gerðu á seinasta ári. 










×