Körfubolti

Wilkins fékk styttu

Wilkins heldur ræðu sína í gær.
Wilkins heldur ræðu sína í gær. vísir/epa
Atlanta Hawks heiðraði sinn dáðasta son í gær er stytta af Dominique Wilkins var afhjúpuð.

Styttunni verður fundinn staður fyrir utan heimavöll félagsins. Eðlilega er styttu-Wilkins á leið í troðslu.

„Það elskar enginn þetta félag eins mikið og ég. Ég er með Hawks-blóð í æðum. Mér fannst alltaf skrýtið að spila fyrir önnur félög enda er ég fyrst og fremst Hawks-maður," sagði Wilkins stoltur.

Það hefur enginn leikið fleiri leiki eða skorað fleiri stig fyrir félagið en Wilkins.

Hawks var ekki bara að afhjúpa þessa styttu því nú er í gangi svokölluð „Nique-vika" þar sem þessi snillingur er heiðraður.

Styttan er glæsileg.vísir/epa
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×