Handbolti

Wilbek um sæti Íslands á HM í Katar: Yrði erfiðasti riðill allra tíma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ulrik Wilbek sem þjálfari danska landsliðsins.
Ulrik Wilbek sem þjálfari danska landsliðsins. Vísir/AFP
Það eru ekki bara Ísland, Suður-Kórea, Ungverjaland og Serbía sem bíða spennt eftir ákvörðun Alþjóðahandboltasambandsins um hvaða þjóðir taka sæti Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmanna á HM í handbolta í Katar í janúar.

Alþjóðahandboltasambandið mun ákveða sig 21. nóvember hvaða þjóðir fá sætið en það er löngu búið að draga í riðla og því munu riðlarnir taka á sig nýja mynd. Fyrrnefndar þjóðir vonast eftir HM-sæti sem þær misstu af í undankeppninni en þær þjóðir sem komust inn og eru í riðlum óttast nú enn harðari samkeppni.

Arabísku þjóðirnar tvær, Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmin, eru langt frá því að vera í hópi sterkustu handboltaþjóða heims og sá riðill sem fær Evrópuþjóð mun því verða miklu erfiðari. Sex þjóðir eru í hverjum riðli og fjórar þeirra komast áfram í sextán liða úrslitin.

Danir voru í riðli með Barein en auk þess eru í riðlinum Þýskaland, Pólland, Rússland og Argentína.

„Ef Ísland kemur inn í riðilinn með Danmörku þá er það fyrirfram erfiðasti riðill allra tíma. Það yrði afar krefjandi verkefni," sagði Ulrik Wilbek, fyrrum þjálfari danska landsliðsins og núverandi íþróttastjóri danska handboltasambandsins, í viðtali við TV2 Sporten.


Tengdar fréttir

Bjóða tíu blaðamönnum frá hverri þjóð á HM í Katar

Alþjóðahandboltasambandið hefur sent út bréf til þeirra 24 þjóða sem keppa á HM í handbolta í Katar í janúar og ætlar að bjóða tíu blaðamönnum frá hverri þjóð á heimsmeistaramótið. Danska sambandið ætlar ekki að þiggja boðið.

HSÍ ætlar að berjast fyrir farseðlinum til Katar

Möguleikar Íslands á að taka þátt á HM í Katar í janúar jukust mikið í gær þegar Barein ákvað að draga lið sitt úr keppni. Nýju reglurnar hjá IHF, sem urðu þess valdandi að Þjóðverjar fóru á HM en ekki Ísland, gætu á endanum orðið þess valdandi að Ísland

HSÍ er búið að hafa samband við IHF

Það er óvænt eitt opið sæti á HM og formaður HSÍ hringdi í IHF í dag og ítrekaði kröfu sína um að láta Ísland fá sæti á mótinu.

Ísland með á HM í handbolta í Katar eftir allt saman?

Íslenska handboltalandsliðið gæti verið á leiðinni á HM í Katar í janúar eftir allt saman vegna ástandsins við Persaflóann en svo gæti farið að bæði Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum yrði meinuð þátttaka á HM.

Fer Ísland í riðil með Guðmundi og Degi?

Fari svo að íslenska landsliðið taki sæti Barein á HM í handbolta í Katar þá gætum við fengið skemmtilegt einvígi þriggja íslenskra þjálfara í riðlakeppninni.

Furstadæmin draga lið sitt úr keppni | Líklegt að Ísland verði með í Katar

Dramatíkin í kringum HM í handbolta í Katar á næsta ári virðist engan enda ætla að taka, en franska fréttastofan AFP hefur greint að Sameinuðu arabísku furstadæmin hafi dregið lið sitt úr keppni, sem þýðir væntanlega að möguleikar Íslendinga að taka sæti á HM hefur aukist til mikilla muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×