Golf

Wieseberger leiðir í Dubai eftir fyrsta hring

Wieseberger er í stuði þessa dagana.
Wieseberger er í stuði þessa dagana. Getty
Austurríkismaðurinn Bernd Wieseberger er greinilega í miklu stuði þessa dagana en eftir að hafa verið í toppbaráttunni á síðustu tveimur mótum á Evrópumótaröðinni leiðir hann á Dubai Desert Classic eftir fyrsta hring.

Wieseberger lék Emirates völlinn á 64 höggum í dag eða á átta undir pari en fjórir kylfingar eru í öðru sæti á sjö undir pari, meðal annars Englendingurinn Lee Westwood og hinn högglangi Nicolas Colsaerts.

Þá er Rory McIlroy einnig meðal þátttakenda en hann byrjaði vel og er jafn í sjötta sæti á sex höggum undir pari sem og sigurvegari síðasta árs, Stephen Gallacher.

Þá vakti töluverða athygli fyrir mótið að sonur goðsagnarinnar Seve Ballesteros, Javier Ballesteros væri meðal þátttakenda en hann gerðist atvinnumaður í golfi seint á síðasta ári.

Mótið er hans fyrsta á Evrópumótaröðinni á ferlinum en honum gekk vægast sagt mjög illa og kom inn á 83 höggum eða 11 yfir pari. Hann situr eins og er í síðasta sæti en hefur tækifæri á því að laga stöðuna aðeins á öðrum hring á morgun.

Tvö stór mót eru á dagskrá í golfheiminum um helgina en bæði Dubai Desert Classic og Phoenix Open, þar sem Tiger Woods hefur keppnistímabil sitt, verða í beinni útsendingu á Golfstöðinni. Alla útsendingartíma má nálgast hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×