Glamour

Whoopi Goldberg hannar ljótar jólapeysur

Ritstjórn skrifar
Whoopi Goldberg hefur hannað ljótar jólapeysur.
Whoopi Goldberg hefur hannað ljótar jólapeysur. Mynd/Getty
Leikkonan og spjallþáttadrottningin Whoopi Goldberg hefur hannað sína eigin línu af ljótum jólapeysum. Peysurnar koma í ellefu mismunandi gerðum og verða seldar í verslununum Lord & Taylor í Bandaríkjunum. 

Sjálf segist Whoopi hafa alltaf elskað ljótar jólapeysur og hún klæðist þeim í kringum jólin á hverju einasta ári. Hún segir einnig að hún hafi fengið mikla útrás fyrir sköpunargleðinni þegar hún hannaði þær enda sé margt skrítið í gangi í hausnum hennar. 

Hér fyrir neðan má sjá forsmekkinn af peysunum en þær fara á sölu 1.nóvember. 






×