Bíó og sjónvarp

Westworld snýr ekki aftur fyrr en 2018

Samúel Karl Ólaoson skrifar
"Við áttuðum okkur á hve flókið það var að reyna að skrifa fleiri þætti og framleiða þættina á sama tíma,“ segir Nolan.
"Við áttuðum okkur á hve flókið það var að reyna að skrifa fleiri þætti og framleiða þættina á sama tíma,“ segir Nolan. Mynd/HBO
Fyrstu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Westworld er nú lokið og óhætt er að segja að margir áhorfendur séu strax að bíða næstu þáttaraðar með óþreyju. Ljóst er að þau þurfa að bíða í tvö ár. Næsta þáttaröð verður ekki sýnd fyrr en árið 2018.

Framleiðendurnir Lisa Joy og Jonathan Nolan segja að þau hafi rætt þetta við forsvarsmenn HBO mjög snemma í framleiðsluferlinu á fyrstu þáttaröðinni. Þau ræddu við Variety um þáttaröðina og hvað stæði til. (Hafið í huga að það eru spoilerar í hlekknum ef þið hafið ekki horft á fyrstu þáttaröðina alla)

„Við áttuðum okkur á hve flókið það var að reyna að skrifa fleiri þætti og framleiða þættina á sama tíma,“ segir Nolan

„Við vinnum bæði einnig við kvikmyndir og þar getur maður að mestu vonast til þess að koma framhaldsmynd út á tveimur til þremur árum. Á þeirri áætlun erum við að standa okkur frábærlega.“

Á morgun verður farið yfir hvað gerðist í síðasta þættinum og hvað það þýðir fyrir framhald Westworld, eða annarra heima.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×