Körfubolti

Westbrook skoraði 57 stig er hann náði 38. þrennunni | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook, leikmaður Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í körfubolta, heldur áfram að endurskrifa söguna en hann náði 38. þrennu sinni á tímabilinu í nótt þegar hann skoraði 57 stig, tók þrettán fráköst og gaf ellefu stoðsendingar í 114-106 sigri á Orlando Magic í leik sem fór í framlengingu.

Enginn í sögu deildarinnar hefur skorað svona mörg stig á sama tíma og hann náði þrennu en Westbrook vantar núna þrjár þrennur til að jafna met Oscars Robertsson frá því tímabilinu 1961-1962.

Líkt og í síðasta leik skilaði frammistaða Westbrooks sigri en sú hefur ekki alltaf verið raunin á tímabilinu. OKC lenti mest 21 stigi undir í seinni hálfleik en kom sterkt til baka. Westbrook jafnaði leikinn með þriggja stiga körfu þegar sjö sekúndur voru eftir og liðið tryggði sér svo sigurinn í framlengingu.

Golden State Warriors er svo gott sem búið að tryggja sér efsta sætið í vesturdeildinni og heimaleikjarétt út úrslitakeppnina en liðið vann hrikalegan sterkan útisigur á næstefsta liði vestursins, San Antonio Spurs, 110-98, á útivelli í nótt.

Spurs-liðið byrjaði miklu betur og náði 22 stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta en Steph Curry og félagar gáfust ekki upp og komust yfir snemma í seinni hálfleik. Gestirnir spiluðu sterka vörn og hirtu boltann fjórtán sinnum af San Antonio.

Steph Curry skoraði 29 stig fyrir Golden State og Klay Thompsons 23 stig en hjá Spurs var Kawhi Leonard stigahæstur með 19 stig og LaMarcus Aldridge skoraði 17 stig.

Golden State er nú búið að vinna níu leiki í röð og er allt að koma til eftir slakt gengi þegar Kevin Durant meiddist. Liðið er nú með þriggja og hálfs sigra forskot á Spurs á toppnum þegar fimm leikir eru eftir.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia 76ers - Atlanta Hawks 92-96

Orlando Magic - OKC Thunder 106-114

Boston Celtics - Milwaukee Bucks 100-103

Toronto Raptors - Charlotte Hornets 106-100

NY Knicks - Miami Heat 88-105

Memphis Grizzlies - Indiana Pacers 110-97

New Orleans Pelicans - Dallas Mavericks 121-118

San Antonio Spurs - Golden State Warriors 98-110

LA Clippers - Washington Wizards 133-124

Sacramento Kings - Utah Jazz 82-112

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×