Körfubolti

Westbrook öflugur í sigri Oklahoma | Enn tapar Knicks

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Westbrook í kunnuglegri stöðu.
Westbrook í kunnuglegri stöðu. vísir/afp
Oklahoma City Thunder færði stuðningsmönnum sínum góða jólagjöf með átta stiga sigri, 114-106, á San Antonio Spurs í kvöld.

Leikurinn var jafn framan af, en Oklahoma, sem lék án Kevins Durant í kvöld, var þremur stigum yfir í hálfleik, 50-47.

Meistarnir unnu 3. leikhlutann 30-26 og voru einu stigi yfir fyrir 4. og síðasta leikhlutann. Þar tóku leikmenn Oklahoma yfir, náðu mest níu stiga forystu (102-93) og unnu að lokum átta stiga sigur, 114-106.

Russell Westbrook fór fyrir liði Oklahoma í fjarveru Durants. Hann skoraði 34 stig, tók fimm fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal boltanum fimm sinnum.

Serge Ibaka var einnig öflugur með 21 stig og níu fraköst og miðherjinn Steve Adams skilaði 16 stigum, 15 fráköstum og þremur vörðum skotum.

Þá átti Anthony Morrow góða innkomu af bekknum með 15 stig, en hann setti m.a. niður tvo mikilvæga þrista á lokakafla leiksins. Leikmenn Þrumunnar voru heitir fyrir utan þriggja stiga línuna í kvöld, en þeir skoruðu alls níu þriggja stiga körfur úr aðeins 15 tilraunum.

Sjö leikmenn San Antonio skoruðu tíu stig eða fleiri í kvöld. Matt Bonner var þeirra stigahæstur með 17 stig. Manu Ginobili átti einnig góðan leik með 11 stig, sjö fráköst og 13 stoðsendingar.

Einum öðrum leik er lokið í NBA-deildinni. Washington Wizards vann nokkuð þægilegan sigur, 102-91, á New York Knicks. Galdramennirnir náðu mest 22 stiga forystu og lentu aldrei undir í leiknum.

Leikstjórnandinn John Wall skoraði 24 stig, tók sex fráköst og gaf 11 stoðsendingar í liði Washington. Bradley Beal skilaði 17 stigum, fimm fráköstum og fimm stoðsendingum.

Carmelo Anthony var stigahæstur hjá Knicks með 34 stig, en liðið hefur aðeins unnið fimm leiki í vetur og er í afar slæmum málum í næstneðsta sæti Austurdeildarinnar.

Marco Belinelli fer illa með Serge Ibaka John Wall og Bradley Beal voru öflugir í öruggum sigri Washington á New York Mögnuð karfa hjá Wall
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×