Erlent

Westboro baptistarnir ruglast á fánum og fordæma Fílabeinsströndina

Bjarki Ármannsson skrifar
Þessi meðlimur Westboro safnaðarins hefur sennilega ætlað að hafa mynd af írska fánanum á skiltinu til hægri.
Þessi meðlimur Westboro safnaðarins hefur sennilega ætlað að hafa mynd af írska fánanum á skiltinu til hægri. Mynd/Westboro baptistasöfnuðurinn á Twitter
Westboro baptistasöfnuðurinn í Kansasríki í Bandaríkjunum, sem vakið hefur mikla athygli á undanförnum árum fyrir haturáróður í garð samkynhneigðra, lýsti á dögunum óvart yfir fyrirlitningu sinni á Fílabeinsströndinni. Meðlimir safnaðarins rugluðust þá á fánum Afríkuríkisins og Írlands, sem á dögunum samþykkti í þjóðaratkvæðagreiðslu að leyfa hjónabönd samkynhneigðra.

Í nýju myndbandi sem Westboro setti á netið sjást meðlimir safnaðarins dansa á írskum fána og syngja lag um að Írland sé á leið til helvítis. Söfnuðurinn hefur einnig búið til skilti með orðunum „Fag Flag“ við mynd af grænum, hvítum og appelsínugulum fána sem væntanlega átti að vera sá írski.

Nema hvað, fánalitirnir eru í rangri röð og mynda þannig fána Fílabeinsstrandarinnar. Þess má geta að ríkisstjórn Fílabeinsstrandarinnar viðurkennir ekki formlega sambönd samkynhneigðra. Vöktu þessi mistök mikla kátínu á samskiptamiðlum og óspart gert grín að söfnuðinum þar.

Írar urðu í vikunni fyrsta þjóðin í heimi til að lögleiða hjónabönd samkynhneiðgra i þjóðaratkvæðagreiðslu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×