Fótbolti

West Ham vann fyrsta leikinn á Ólympíuleikvanginum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kouyate skoraði fyrsta mark West Ham á Ólympíuleikvanginum í London.
Kouyate skoraði fyrsta mark West Ham á Ólympíuleikvanginum í London. vísir/afp
West Ham vann fyrsta keppnisleik sinn á Ólympíuleikvanginum í London, nýjum heimavelli sínum, þegar slóvenska liðið Domzale kom í heimsókn í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.

Domzale vann óvæntan 2-1 sigur í fyrri leik liðanna en Hamrarnir voru sterkari aðilinn í leiknum í kvöld.

Senegalski miðjumaðurinn Cheikhou Kouyate kom West Ham yfir strax á 8. mínútu og hann skoraði svo aftur á 25. mínútu og staða West Ham orðin góð.

Sofiane Feghouli, sem kom til West Ham frá Valencia fyrr í sumar, gulltryggði svo sigurinn þegar hann skoraði þriðja mark Hamranna níu mínútum fyrir leikslok.

Lokatölur 3-0 og West Ham fer áfram, 4-2 samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×