Enski boltinn

West Ham hefur áhuga á Fabregas

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fabregas fagnar hér marki sínu í vikunni.
Fabregas fagnar hér marki sínu í vikunni. vísir/getty
Enski miðlar greina frá því í dag að West Ham United ætli sér að klófesta Cesc Fabregas í janúarglugganum en Spánverjinn hefur ekki verið í byrjunarliðinu hjá Antonio Conte, knattspyrnustjóra Chelsea, á tímabilinu.

Fabregas var aftur á móti í byrjunarliði Chelsea í gær en þá tapaði liðið 3-0 fyrir Arsenal á Emirates-vellinum í London. Í fyrstu fimm leikjum liðsins byrjaði Fabregas á varamannabekknum.

Conte mun hafa gefið grænt ljós á það að Fabregas geti yfirgefið klúbbinn en þessi 29 ára miðjumaður var frábær fyrir Chelsea þegar liðið vann Leicester í bikarnum í vikunni. West Ham hefur farið illa af stað í deildinni en liðið mætir Sunderland klukkan þrjú í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×