Fótbolti

West Ham fer ekki í Evrópudeildina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/getty
Ólympíuleikvangurinn í London var ekkert happa fyrir West Ham í Evrópudeildinni í kvöld.

Liðið tapaði nefnilega, 0-1, á heimavelli gegn Astra frá Rúmeníu í kvöld og tapaði því rimmu liðanna 2-1 samanlagt. Þetta er annað árið í röð sem Astra klárar West Ham í keppninni.

Astra fer þar af leiðandi í Evrópudeildina en engir fleiri Evrópuleikir verða á hinum nýja og glæsilega heimavelli West Ham í vetur.

Þetta er mikið áfall fyrir West Ham sem ætlaði sér stóra hluti í Evrópudeildinni á nýja heimavellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×