Werder Bremen sló út Sampdoria

Vísir Meistaradeildin 24. ágúst 2010 21:28
Claudio Pizarro fagnar markinu mikilvćga í kvöld.
Claudio Pizarro fagnar markinu mikilvćga í kvöld. Nordic Photos / Bongarts
Fimm leikir fóru fram í umspili fyrir riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sampdoria frá Ítalíu og Sevilla frá Spáni féllur úr leik.

Þetta voru síðari viðureignir liðanna en umspilinu lýkur með öðrum fimm leikjum annað kvöld.

Werder Bremen var í góðri stöðu fyrir síðari leikinn gegn Sampdoria eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum. Þeir ítölsku náðu þó að vinna upp forskotið í kvöld og knýja fram framlengingu.

Í henni hafði þó Werder Bremen betur en Claudio Pizarro skoraði markið sem tryggði liðinu áframhaldandi þátttöku í Meistaradeildinni á tíundu mínútu framlengingarinnar.

Sporting Braga frá Portúgal kom mörgum á óvart í kvöld með ótrúlegum 4-3 sigri á Sevilla á útivelli í kvöld og samanlögðum 5-3 sigri.

Vítaspyrnukeppni þurfti til að fá niðurstöðu í rimmu Anderlecht og Partizan Belgrad. Báðum leikjum lauk með 2-2 jafntefli en Partizan hafði betur í vítaspyrnukeppninni, 3-2.

Þá komust Hapoel Tel Aviv frá Ísrael og FC Basel frá Sviss einnig áfram í kvöld og spila því í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Dregið verður í riðla á fimmtudaginn.

Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Werder Bremen sló út Sampdoria