Enski boltinn

Wenger ánægður með nýjasta leikmann Arsenal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er kampakátur með að vera búinn að landa kólumbíska markverðinum, David Ospina.

Ospina kemur frá Nice í Frakklandi, en hann fór á kostum með Kólumbíu á HM í Brasilíu nú í sumar.

„Ospina er frábær markvörður, með góða reynslu og hefur gert það gott hjá Nice og Kólumbíu," sagði Wenger við heimasíðu Arsenal.

„Hann mun styrkja okkar hóp og við erum mjög ánægðir með að fá hann."

Hjá Arsenal mun Ospina berjast um markvarðarstöðuna við pólska markvörðinn, Wojciech Szczesny, sem hefur verið aðalmarkvörður hjá Arsenal undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×