Enski boltinn

Wenger: Walcott byrjar að æfa í næstu viku

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Walcott var borinn út af í leik Arsenal og Tottenham í janúar.
Walcott var borinn út af í leik Arsenal og Tottenham í janúar. Vísir/Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur staðfest að Theo Walcott muni snúa aftur til æfinga í næstu viku. Walcott hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðan í janúar, en hann átti upphaflega að koma til baka í lok ágúst-mánaðar.

„Walcott byrjar að æfa í næstu viku, líkt og Serge Gnabry. Það eru mjög góðar fréttir og mikilvægt fyrir okkur. Það má ekki gleyma því að Walcott meiddist 1. janúar og nú er kominn október. Þetta eru tíu mánuðir og við þurftum að bíða lengi. Vonandi kemur ekkert bakslag núna.“

Wenger staðfesti einnig að Jack Wilshere yrði í leikmannahópi Arsenal gegn Galatasary í Meistaradeild Evrópu á morgun. Wilshere meiddist á ökkla í leiknum gegn Tottenham um síðustu helgi.

Arsenal tapaði 2-0 fyrir Borussia Dortmund í fyrsta leik sínum í Meistaradeildinni í ár.

„Þú þarft að ná a.m.k. tíu stigum í riðlakeppninni svo heimaleikirnir eru mikilvægir. Úrslitin í Dortmund voru vonbrigði, en ég sé góða möguleika í stöðunni,“ sagði Frakkinn sem hefur stýrt Arsenal frá árinu 1996.


Tengdar fréttir

Wenger kemur Özil til varnar

Mesut Özil hefur byrjað tímabilið illa, en þrátt fyrir það stendur Arsene Wenger þétt við bakið á sínum manni.

Walcott sleppur við refsingu

Theo Walcott, kantmaður Arsenal, stríddi stuðningsmönnum Tottenham er hann var borinn af velli í 2-0 sigri í enska bikarnum í knattspyrnu um helgina.

Walcott brosti á sjúkrabörunum og sýndi stöðuna

Theo Walcott var borinn af velli þegar Arsenal komst áfram í 32 liða úrslit ensku bikarkeppninnar í kvöld eftir sannfærandi 2-0 sigur á nágrönnum sínum í Tottenham. Walcott leyfði sér samt að brosa á börunum þegar hann var borinn af velli.

Wenger ósáttur | Sjáið mörkin

Arsene Wenger knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal var allt annað en sáttur við að lið hans hafi aðeins náð í eitt stig gegn Tottenham á heimavelli í dag.

Wenger ver Welbeck

Hinn nýi framherji Arsenal, Danny Welbeck, fór illa með nokkur góð færi í leiknum gegn Dortmund í gær sem Arsenal tapaði, 2-0.

Wenger framlengdi til 2017

Arsene Wenger batt enda á allar sögusagnir að tíma hans hjá Arsenal væri að ljúka með því að skrifa undir framlengingu á samningi sínum í dag.

Walcott missir af HM

Meiðsli Theo Walcott, kantmanns Arsenal, eru alvarlegri en talið var í fyrstu. Bendir flest til þess að hann verði frá keppni næsta hálfa árið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×