Enski boltinn

Welbeck skaut Arsenal upp í 3. sætið | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arsenal styrkti stöðu sína í baráttunni um Meistaradeildarsæti með 1-0 sigri á Norwich City í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Arsene Wenger stýrði Arsenal í 750. sinn í dag en hans menn voru daufir í fyrri hálfleik þar sem gestirnir ógnuðu meira.

Staðan í hálfleik var markalaus en á 56. mínútu setti Wenger Danny Welbeck inn fyrir Alex Iwobi. Og Welbeck þakkaði traustið þegar hann skoraði með skoti úr teignum þremur mínútum síðar eftir að Oliver Giroud skallaði boltann á hann.

Fleiri urðu mörkin ekki og Arsenal fagnaði þremur stigum sem koma liðinu upp fyrir Manchester City í 3. sæti deildarinnar. City getur endurheimt 3. sætið með sigri á Southampton á morgun.

Norwich er hins vegar í 19. og næstsíðasta sæti deildarinnar með 31 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Norwich á þó leik til góða á Newcastle United sem er í 17. sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×