Enski boltinn

Welbeck: Góð frammistaða hjá liðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Welbeck glaðbeittur.
Welbeck glaðbeittur. Vísir/Getty
Danny Welbeck skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal í 3-0 sigri þeirra á Aston Villa í dag. Welbeck var skiljanlega ánægður í leikslok.

„Ég er mjög ánægður með að ná að skora. Þetta var góð frammistaða hjá liðinu," sagði Welbeck eftir leikinn.

„Við vissum að þetta yrði erfitt í dag. Þeir áttu nokkur færi, en þegar við skoruðum fyrsta markið tókum við öll völd á leiknum."

„Ég hef ekki æft mikið með þeim, en ég er byrjaður að læra inná leikmennina betur og betur," sagði glaðbeittur Welbeck að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×