Handbolti

Weinhold: Hlakka til að hitta Alfreð

Arnar Björnsson í Katar skrifar
Steffen Weinhold spilaði mjög vel með Þjóðverjum á HM.
Steffen Weinhold spilaði mjög vel með Þjóðverjum á HM. vísir/getty
Þýskaland tryggði sér í dag sjöunda sætið á HM í handbolta með sigri á Slóveníu. Mikilvægt var fyrir Dag Sigurðsson og hans menn að hafa endurheimt skyttuna Steffen Weinhold úr meiðslum.

Weinhold er lykilmaður í sóknarleik Þjóðverja. Hann gat ekki spilað gegn Króötum í gær vegna meiðsla en lék í dag. Meiðslin háðu honum greinilega en hann hélt utan um sóknarleik Þjóðverja, nokkuð sem Jens Schöngarth átti í vandræðum með gegn Króatíu í gær.

Schöngarth skoraði nokkur mörk í leiknum en gerði einhver 17 mistök í sókninni gegn Króötum og þau reyndust dýrkeypt.

„Þetta var þýðingarmikill sigur fyrir okkur. Við vildum vinna leikinn til að komast í keppni um að komast á Olympíuleikana í Ríó á næsta ári. Þetta var erfiður leikur en við erum ánægðir með að sigurinn og sjöunda sætið,“ sagði Weinhold en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

Þú misstir af leiknum við Króata í gær vegna meiðsla en þú vildir sjálfur spila þennan leik í dag?

„Já en þetta var ekki auðvelt fyrir mig. Ég talaði við þjálfarann og sagði honum að ég væri tilbúinn að spila ef hann gæti notað mig. Þrátt fyrir að ég vissi að ég myndi ekki spila vel myndi ég reyna að hjálpa liðinu. Þetta var nóg í dag og ég er ánægður jafnvel þó að ég hefði ekki átt minn besta leik.“

Þjálfarinn þinn hjá Kiel, Alfreð Gíslason verður ekki reiður við þig af því að þú tókst þá ákvörðun að spila?

„Ég veit það ekki. Ég talaði við Alfreð og lækninn hjá Kiel og ég vona að þeir verði ekki reiðir við mig. Ég þarf að taka mér frí frá handbolta í nokkra daga til að jafna mig.“

Silvio Heinevetter var frábær í markinu?

„Ég var viss um að hann myndi eiga góða leiki á HM og ég er ánægður með frammistöðu hans í leiknum.“

Þú losnar ekki við Íslendingana, núna ertu búinn að vera hjá Degi og nú hittir þú Alfreð Gíslason á nýjan leik?

„Það er alltaf svo gaman af þessum íslensku þjálfurum. Ég hlakka til að hitta Alfreð.“

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Alfreð og Dagur í sama gæðaflokki

Bob Hanning er maðurinn á bak við uppgang Füchse Berlin og var aðalhvatamaðurinn að því að Dagur Sigurðsson var ráðinn þjálfari þýska landsliðsins. Hann segist aldrei hafa velt því tvisvar fyrir sér hvort Dagur væri rétti maðurinn í starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×