Enski boltinn

Wayne Rooney tryggði Manchester United jafntefli í Stoke og markametið féll | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Manchester United og Stoke skildu jöfn 1-1 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag í Stoke.

Wayne Rooney tryggði Manchester United stig með frábæru marki beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma. Þetta var 250. mark hans fyrir félagið en enginn hefur skorað meira fyrir félagið.

Stoke komst yfir með sjálfsmarki Juan Mata á 19. mínútu. Manchester United sótti án afláts og uppskar jöfnunarmark á fjórðu mínútu uppbótartíma.

Manchester United er nú með 41 stig í 6. sæti deildarinnar en Stoke er þremur sætum neðar með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×