Golf

Watson vann Masters

Bandaríkjamaðurinn Bubba Watson kann vel við sig í grænu en hann stóð uppi sem sigurvegari á Masters-mótinu í kvöld.

Watson lék samtals á 8 höggum undir pari og var þrem höggum á undan hinum tvítuga Jordan Spieth og Svíanum Jonas Blixt. Spánverjinn Miguel Angel Jimenez kom í næsta sæti þar á eftir.

Hinn ungi Spieth byrjaði daginn með miklum látum og fékk fjóra fugla á fyrstu sjö holunum. Svo fór honum að fatast flugið og Watson komst í forystu.

Hann gerði engin stór mistök. Lék mjög stöðugt og gott golf á meðan hinn reynslulausi Spieth lenti í alls konar vandræðum sem hann reyndar leysti oftar en ekki mjög vel.

Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Watson vinnur Masters-mótið og klæðist græna jakkanum eftirsótta.

Lokastaðan:

-8 Bubba Watson, Bandaríkin

-5 Jordan Spieth, Bandaríkin

-5 Jonas Blixt, Svíþjóð

-4 Miguel Ángel Jiménez, Spánn

-2 Matt Kuchar, Bandaríkin

-2 Rickie Fowler, Bandaríkin

-1 Lee Westwood, England

Watson faðmar hinn unga Spieth að sér. Spieth hefði orðið yngsti sigurvegari Masters frá upphafi ef hann hefði unnið.vísir/getty

Tengdar fréttir

Slær Spieth met Woods?

Örlögin gætu verið hliðholl hinum 20 ára Jordan Spieth sem hefur vakið mikla athygli á Masters mótinu í Bandaríkjunum en hann er jafn Bubba Watson í efsta sæti fyrir lokahring mótsins.

Er Spieth að stinga af? | Myndband

Jordan Spieth hefur farið af stað með miklum látum á lokakeppnisdegi á Masters mótinu. Hann er búinn að fá fjóra fugla á fyrstu sjö holunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×