Golf

Watson: Bandaríska liðið verður að komast aftur á sigurbraut

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Tom Watson.
Tom Watson. Vísir/Getty
Fyrirliði bandaríska liðsins í Ryder-bikarnum, Tom Watson, telur að sínir menn verði að hefna fyrir ófarir liðsins fyrir tveimur árum á Medinah vellinum í Chicago. Þá höfðu Evrópumenn betur eftir ótrúlegan endasprett eftir að Bandaríkjamann fóru með fjögurra stiga forystu inn í lokakeppnisdaginn.

Tom Watson nýtur gríðarlegrar virðingar í golfheiminum en telur að sínir menn verði að svara fyrir sig á Gleneagles vellinum í Skotlandi þar sem keppnin fer fram í lok mánaðarins. Evrópa hefur unnið fimm af síðustu sex keppnum.

„Bandaríska liðið verður að komast aftur á sigurbraut. Ósigurinn á Medinah ætti ennþá að sitja í leikmönnum,“ segir Watson.

Hinn 65 ára gamli Watson stýrði liði Bandaríkjanna til sigurs árið 1993 á Belfry-vellinum í Írlandi. Hann var ólmur í að endurtaka leikinn. „Þegar ég fékk símtalið fyrir tveimur árum þá sagði ég við sjálfan mig að ég væri búinn að bíða eftir þessu símtali í 20 ár,“ segir Watson.

Watson teflir fram þremur nýliðum í Ryder-bikarnum í ár. Hinn ungi Jordan Spieth leikur í fyrsta sinn í liði Bandaríkjanna og sömu sögu er að segja af þeim Patrick Reed og Jimmy Walker. Watson á ærið verkefni fyrir höndum enda eru flestir golfsérfræðingar sammála um að lið Evrópu sé sigurstranglegra á Gleneagles vellinum í Skotlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×