Enski boltinn

Warnock tekinn við Crystal Palace

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það gekk lítið hjá Warnock hjá Leeds.
Það gekk lítið hjá Warnock hjá Leeds. Vísir/Getty
Neil Warnock hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Crystal Palace. Hann tekur við af Tony Pulis sem hætti óvænt 14. ágúst síðastliðinn. Warnock var valinn fram yfir Steve Clarke, sem kom einnig til greina sem næsti knattspyrnustjóri liðsins.

Warnock skrifaði undir tveggja ára samning við Palace, en hann mun stýra liðinu í fyrsta sinn gegn Newcastle United á laugardaginn.

Warnock, sem verður 66 ára 1. desember næstkomandi, hefur komið víða við á löngum þjálfaraferli. Hann hefur m.a. stýrt Notts County, Huddersfield Town, Sheffield United, QPR, auk þess sem hann stýrði Crystal Palace áður á árunum 2007-2010.

Warnock var síðast við stjórnvölinn hjá Leeds United, en hann var látinn fara þaðan í byrjun apríl eftir slakt gengi liðsins.

Crystal Palace hefur tapað báðum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Arsenal og 3-1 gegn West Ham. Liðið vann hins vegar 3-0 sigur á Wallsall í enska deildarbikarnum í gær, þar sem Dwight Gayle skoraði þrennu.


Tengdar fréttir

Sherwood nálgast Crystal Palace

Veðbankar í Englandi eru hættir að taka við veðmálum að Tim Sherwood verði næsti knattspyrnustjóri Crystal Palace.

Gylfi Þór og félagar slógu út lið Kára

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City slógu Kára Árnason og félaga í Rotherham United út úr enska deildabikarnum í kvöld. Swansea City var eitt af fjölmörgum liðum sem komust áfram í 3. umferð.

Enska knattspyrnusambandið rannsakar samskipti Mackay og Moody

The Daily Mail greindi frá því seint í gærkvöldi að Malky Mackay mun ekki taka við liði Crystal Palace eftir að það fundust heldur ósmekkleg skilaboð á milli Mackay og fyrrverandi samstarfsfélaga hans hjá Cardiff, Iain Moody sem innihéldu kynþáttafordóma, hommahatur og niðrandi orð í garð kvenna.

Tim Sherwood tekur ekki við Crystal Palace

Tim Sherwood staðfesti í gær við SkySports að hann hefði hætt samningarviðræðum við Crystal Palace þar sem verkefnið hentaði honum ekki.

West Ham skellti Palace

West Ham lagði Crystal Palace 3-1 í annarri umferð ensku úrvalsdeildinnar í fótbolta í dag. Á sama tíma gerðu Southampton og West Brom markalaust jafntefli.

Moody segir upp starfi sínu hjá Crystal Palace

Iain Moody sagði upp starfi sínu sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Crystal Palace í dag í ljósi rannsóknar enska knattspyrnusambandins á samskiptum Moody og Malky Mackay, fyrrverandi knattspyrnustjóra Cardiff.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×