Leikjavísir

WarMonkeys ganga til liðs við CAZ eSports

Samúel Karl Ólason skrifar
Meðlimir WarMonkeys.
Meðlimir WarMonkeys.
Leikmenn íslenska Counter-strike liðsins WarMonkeys skrifuðu í gær undir samning til sex mánaða við breska fyrirtækið CAZ eSports sem rekur rætur sínar til atvinnumennsku í Call Of Duty leiknum. Fyrirtækið hefur átt atvinnumenn í HeartstoneCounter-strikesourceCounter-strike:GO og Call Of DutyCAZ er eitt af stærstu eSports fyrirtækjum í Bretlandi.

Samningurinn kveður upp á stuðning við leikmenn liðsins svo þeir geti einbeitt sér að því að spila leikinn.

Liðsmenn WarMonkeys hafa allir verið meðal bestu Counter-Strike spilara landsins bæði í CS:source og CS:GO, liðið er margverðlaunað á Íslandi og hefur náð eftirtektarverðum árangri á erlendum mótum. WarMonkeys fær þó sérmeðferð og halda samböndum við íslensk fyrirtæki, en liðið hefur átt mjög farsælt samstarf við Tölvutek og mun það halda áfram.

Aron Ólafsson, framkvæmdarstjóri WarMonkeys, segir í tilkynningu að umgjörðin í kringum liðið mun breytast talsvert þó leikmennirnir munu líklega ekki finna mikið fyrir því.

„Þeir fá að einbeita sér að því að bæta sig en bæði ég og þjálfarinn þeirra munum fylgja liðinu. Ég verð starfsmaður CAZ eSports og verð nokkurs konar liðsstjóri. Það er ágætt að þurfa ekki að vera allt í öllu lengur samhliða fullri vinnu. Uppgangur rafíþrótta hefur verið gríðarlegur út í heimi og eru fleiri milljónir sem horfa á rafíþróttir. Það eru fá íslensk fyrirtæki sem hafa séð sóknartækifæri í þessari menningu sem er ótrúlegt. Það eru þúsundir manns sem lesa stöðufærslur á netinu og fylgjast með liðinu þegar það keppir. Þess vegna er þetta mikill munur að komast inn á markað erlendis þar sem má finna meiri pening í þessu.“

Kristján Finnsson, fyrirliði liðsins var sammála Aroni.

„Þetta er svolítið skemmtilegt, gaman að fá tækifæri að spila fyrir þekkt félag. Nú munum við fá enn meiri stuðning en við höfum fengið og talsvert meiri athygli erlendis að spila fyrir svona CAZ. Fyrir okkur í liðinu þá skiptir mestu málið að CAZ sér um mikið af þeim útgjöldum sem við höfum þurft að greiða. Það er mikill léttir þó svo að við fáum ekki beinharða peninga frá þeim þá er virði svona samnings mikið, því útgjöldin eru há þar sem við tökum þátt í mörgum mótum.“

Framvegis mun liðið mun ekki lengur spila undir nafninu WarMonkeys heldur CAZ eSports.

Liðið samanstendur af

Þorsteinn „th0rsteinnf“ Friðfinnsson

Kristinn „CaPPiNg!“ Jóhannesson

Ólafur Barði „ofvirkur“ Guðmundsson

Pétur Örn „peterrr“ Helgason

Kristján „kruzer“ Finnsson - Fyrirliði

Þjálfari Caspian –L-

Manager

Aron „Aron Olafs***“ Ólafsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×