Fótbolti

Wanderson bjargaði stigi fyrir Ragnar og félaga

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ragnar í landsleik.
Ragnar í landsleik. vísir/getty
Ragnar Sigurðsson stóð allan tímann í vörn FC Krasnodar sem náði jafntefli gegn CSKA Moskvu á útivelli í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Pontus Wernbloom kom CSKA yfir rétt fyrir hlé og þannig stóðu leikar í hálfleik. Allt leit út fyrir sigur CSKA, en Wanderson bjargaði stigi fyrir Ragnar og félaga. Lokatölur 1-1.

Ragnar og félagar hafa verið frábærir á tímabilinu. Þeir eru í öðru sæti deildarinnar með 48 stig, sjö stigum á eftir Zenit frá Pétursborg. CSKA er sæti neðar með fjórum stigum minna. Annað sætið veitir rétt í umspil Meistaradeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×