Fótbolti

Wambach og Morgan: Gervigras er ömurlegt

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Abby Wambach fagnar með Alex Morgan.
Abby Wambach fagnar með Alex Morgan. vísir/getty
HM kvenna í fótbolta hefst í byrjun júní en eins og áður hefur verið greint frá verður spilað á gervigrasi á stórmóti fullorðinna í fyrsta sinn.

FIFA þurfti að þola mikla gagnrýni fyrir ákvörðun sína, en þrátt fyrir mikil mótmæli var ákvörðunin ekki dregil til baka.

Faye White, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins, velti fyrir sér í viðtali við BBC á síðasta ári hvort konur væru orðin einhver tilraunadýr.

Bandaríska landsliðið barðist harðast á móti þessu og lagði fram kæru gegn FIFA. Kæran barst þó of seint og verður því spilað á gervigrasi.

„Þetta er mjög pirrandi,“ segir Abby Wambach, markahæsta landsliðskona sögunnar, í hlaðvarpi Bill Simmons á vefsíðunni Grantland.

Hún og Alex Morgan, félagi Wambach í framlínunni, ræddu við Simmons um bandaríska landsliðið. Báðar eru þær ósáttar við gervigrasið.

„Gervigras er ömurlegt. Það þarf einhver að byrja með kassmerkið gervigras er ömurlegt [á twitter],“ segir Morgan.

„Þetta eru sjö 90 mínútna leikir. Það er mikið af mínútum og það á gervigrasi. Þess vegna þurfum við að gera mikið af skiptingum og leikmenn verða að vera klárir því við ætlum okkur að spila sjöunda leikinn,“ bætir Wambach við.

„Þetta er hræðilegt. Við kærðum FIFA og kandadíska knattspyrnusambandið en þau drógu þetta á langinn því tæknilega séð kærðum við aðeins of seint.“

Morgan benti svo á að mörg fyrirtæki sem leggja gras á knattspyrnuvelli hafi boðist til að gefa gras á vellina sem spilað verður á í Kanada.

„FIFA vildi bara ekki gefa sig,“ segir Wambach. „Þetta verður sárt.  Sjö leikir á þremur vikum á hvernig undirlagi sem er verður erfitt en sérstaklega á gervigrasi.“

„Þetta snýst ekki bara um verkina heldur er verið að stofna ferlum ungra leikmanna í hættu vegna meiðslanna sem þeir geta orðið fyrir,“ segir Wambach.

Viðtalið má sjá hér að neðan en umræðan um gervigrasið hefst eftir um 35 mínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×