Golf

Walker kláraði dæmið á TPC San Antonio

Walker getur ekki hætt að sigra.
Walker getur ekki hætt að sigra. Getty
Jimmy Walker sigraði í kvöld á sínu fimmta móti á PGA-mótaröðinni á aðeins 18 mánuðum en hann lék best allra á Valero Texas Open.

Walker var í frábærri stöðu fyrir lokahringinn þar sem hann leiddi með fjórum höggum og í kvöld gerði hann engin mistök, kom inn á 70 höggum eða tveimur undir pari og sigraði að lokum með fjórum höggum.

Sigurinn var nánast aldrei í hætti en Jordan Spieth nældi sér í annað sætið á samtals sjö höggum undir pari. Billy Horschel endaði einn í þriðja sæti á fjórum höggum undir pari, heilum sjö höggum á eftir forystusauðnum Walker.

Aðstæður á TPC San Antonio vellinum voru með erfiðasta móti um helgina en mikill vindur sá til þess að skor keppenda var í hærra lagi.

Augu margra voru á Phil Mickelson og framan af leit út fyrir að hann yrði í baráttu efstu manna en lokahringur upp á 76 högg eða fjóra yfir pari gerði það að verkum að hann hrundi niður skortöfluna og endaði að lokum í 30. sæti.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni er Shell Houston Open en það er síðasta mótið fyrir fyrsta risamót ársins, sjálft Masters mótið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×