Enski boltinn

Walcott skoraði sitt 100. mark í bikarsigri Arsenal | Sjáðu mörkin

Leikmenn Arsenal fagna.
Leikmenn Arsenal fagna. Vísir/Getty
Arsenal tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld með 0-2 sigri á utandeildarliði Sutton á útivelli.

Theo Walcott innsiglaði sigurinn á 55. mínútu með sínu hundraðasta marki fyrir Arsenal en Lucas Perez hafði komið Arsenal í 0-1 á 27. mínútu fyrri hálfleiks.

Perez skoraði með snyrtilegu skoti af kantinum eftir snarpa skyndisókn Arsenal. Mark Walcott kom eftir fínan undirbúning Nacho Monreal sem gaf boltann fyrir.

Arsenal mætir öðru utandeildarliði í fjórðungsúrslitunum þegar Lincoln City fer í heimsókn á Emirates.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×