Handbolti

Vukovic til Dags og félaga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Drago Vukovic er öflugur leikmaður.
Drago Vukovic er öflugur leikmaður. Vísir/Getty
Króatíski landsliðsmaðurinn Drago Vukovic gengur til liðs við þýska handknattleiksliðið Füsche Berlin í byrjun tímabilsins 2015-16.

Vukovic kemur frá Tus N-Lübecke þar sem hann hefur leikið frá árinu 2011.

Vukovic, sem er sérstaklega öflugur varnarmaður, varð Ólympíumeistari með Króatíu árið 2004 og var í bronsliði Króata átta árum seinna í London.

Füsche Berlin, sem Dagur Sigurðsson stýrir, endaði í 5. sæti þýsku Bundesligunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×