Handbolti

Vujovic: Ég er sammála þér með að við vinnum riðilinn

Arnar Björnsson skrifar
Vujovic er alltaf líflegur á hliðarlínunni.
Vujovic er alltaf líflegur á hliðarlínunni. vísir/afp
Slóvenar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum með öruggum sjö marka sigri á Makedónum í gær. Þeir geta gert Íslendingum greiða með því að vinna Túnisa í dag.

Slóvenar eru með skemmtilegt lið og síðasti leikurinn í riðlinum, Slóvenía–Spánn, verður áhugaverður.

Eftir blaðamannafundinn í gær fullyrti ég við Vujovic að Slóvenar myndu vinna riðlinn.

„Já, ég er sammála. Við erum með betra lið en Spánverjar og ætlum okkur að vinna. Mér finnst við hafa spilað betur en þeir hingað til,“ sagði hinn geðþekki Vujovic og brosti út að eyrum.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×