Handbolti

Vujovic: Alltaf erfitt að spila gegn Íslandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vujovic á blaðamannafundinum í dag eftir stórsigur gegn Angóla.
Vujovic á blaðamannafundinum í dag eftir stórsigur gegn Angóla. vísir/hbg
Það var létt yfir hinum skemmtilega og skrautlega þjálfara Slóvena, Veselin Vujovic, eftir öruggan sigur hans manna gegn Angóla.

Slóvenska liðið skoraði að vild og hreinlega keyrði angólska liðið í kaf. Tvö skyldustig þar og lítið annað hægt að taka úr leiknum. Á endanum munaði sautján mörkum á liðunum en lokatölur urðu 42-25 fyrir Slóvena.

Næsti leikur Slóvena er svo gegn Íslandi um helgina og þá býst Vujovic við erfiðari leik.

„Það er alltaf erfitt að spila gegn Íslandi. Ísland er með gott lið sem spilar hraðan bolta. Þeir berjast líka alltaf í 60 mínútur,“ sagði Vujovic á blaðamannafundinum.

„Það er alveg ljóst að við þurfum að vera mjög ákveðnir gegn þeim og megum ekki gefa neitt eftir.“

Borut Mackovsek skoraði átta mörk fyrir Slóvena í dag og hann tók í sama streng og þjálfarinn.

„Það er erfitt að eiga við íslenska liðið sem og öll Skandinavíuliðin sem spila hratt. Vörnin verður algjört lykilatriði hjá okkur því ef við fáum auðveld mörk verður eftirleikurinn auðveldari,“ sagði Mackovsek.


Tengdar fréttir

HM-pistill: Hvaða lag mun drengjakór Geirs syngja?

Það er ótrúlega áhugavert heimsmeistaramót fram undan hjá strákunum okkar. Það er svo mikið af ungum mönnum í Metz núna að þetta eru eiginlega bara drengir. Því er vel við hæfi að tala um drengjakór Geirs eins og Gaupi byrjaði á svo skemmtilega.

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

"Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti. Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

Gef ungu drengjunum tækifæri

Geir Sveinsson ætlar að nýta þetta tímamótamót hjá handboltalandsliðinu til þess að byggja upp til framtíðar. Kynslóðaskiptin verða nánast kláruð á HM í Frakklandi eftir ótrúleg ár hjá gullaldarlandsliði Íslands.

Ég gef frá mér orku á vellinum

Það bíða margir spenntir eftir því að sjá hinn magnaða Janus Daða Smárason á HM en hann sýndi í æfingaleikjum fyrir mótið að hann hefur ansi margt fram að færa. Leikmaðurinn er yfirvegaður og ætlar að nýta sín tækifæri vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×