Körfubolti

Vucevic gerði risasamning við Magic

Vucevic í leik gegn Oklahoma.
Vucevic í leik gegn Oklahoma. vísir/getty
Nikola Vucevic, leikmaður Orlando Magic, mun eiga fyrir salti í hafragrautinn næstu árin.

Hann er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Magic sem mun færa honum 6,5 milljarða króna.

Hinn 24 ára gamli Vucevic var með 13,6 stig og 11,5 fráköst að meðaltali í leik fyrstu tvö árin sín hjá Magic.

Hann var fenginn til félagsins frá Philadelphia til þess að leysa Dwight Howard af hólmi.

Vucevic fær 350 milljónir í vetur en eftir það verða árslaunin komin í 1,6 milljarð króna. Það er þokkalegt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×