Fótbolti

Vorum verstir á Norðurlöndunum í júní 2012 en nú erum við bestir

Óskar Ófeigur Jónsson og Tómas Þór Þórðarson skrifa
Gylfi Þór Sigurðsson skorar hér á móti Hollendingum.
Gylfi Þór Sigurðsson skorar hér á móti Hollendingum. Vísir/Valli
Íslendingar hafa aldrei átt jafn gott fótboltalandslið og einmitt í dag og sönnun þess er nýr styrkleikalisti Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem var gefinn út í gær. Stórbrotinn sigur á bronsliði Hollands á dögunum ýtir landsliðinu upp um sex sæti og alla leið í 28. sæti listans.

Fótboltalandsliðið okkar fór lægst í 131. sæti FIFA-listans vorið 2012 en í dag er staða liðsins betri en nokkur gat látið sig dreyma um þegar Svíinn Lars Lagerbäck tók við því fyrir tveimur árum og tíu mánuðum.

Erum að verða betri og betri

„Ég sá þetta á netinu í morgun [gærmorgun],“ sagði Lars Lagerbäck, annar landsliðsþjálfara Íslands, glaður í bragði við Fréttablaðið í gær. „Það er gaman að vera ofarlega á listanum, en það besta er að við erum að verða betri og betri. Það skiptir mig mestu máli.“

Þegar Lars tók við liðinu í október 2011 varð honum og Heimi Hallgrímssyni, þáverandi aðstoðarmanni hans, tíðrætt um að þeir vildu hækka stöðu Íslands á heimslistanum.

„Ég sagði allavega þegar við byrjuðum að ég teldi okkur geta komist á meðal efstu fimmtíu þjóðanna. Ég mat það svona út frá þeim leikmönnum sem við vorum með og fannst það raunsætt. En þessi staða er enn betri. Ég er virkilega ánægður fyrir hönd strákanna og íslenskrar knattspyrnu,“ sagði Lars sem hafði ekki fengið símtöl frá svekktum sænskum blaðamönnum, en nokkuð var fjallað um stöðu Svíþjóðar og Íslands á sænskum miðlum í gær.

„Nei, það hefur enginn hringt frá Svíþjóð enn þá. Það var mikið hringt eftir sigurinn á Hollandi, ekkert núna,“ sagði hann léttur.

Graf/Garðar Kjartansson
Ellefu sætum ofar en Svíar

Svíar duttu niður um sjö sæti á nýja listanum, alla leið niður í sæti 39 og liðið sem var 87 sætum á undan Íslandi í ársbyrjun 2012 situr nú ellefu sætum neðar á lista FIFA. Svíarnir höfðu reyndar meiri áhyggjur af því í gær að vera neðar en Grænhöfðaeyjar.

Ísland var í 104. sæti á janúarlistanum fyrir árið 2012 og þá voru allar fjórar helstu knattspyrnuþjóðir Norðurlandanna langt fyrir ofan íslenska landsliðið. Styst var í Finnana sem sátu 19 sætum ofar en lengst í Dani sem voru 93 sætum ofar en Ísland.

Staðan varð reyndar enn verri á listanum áður en hún varð betri og mest munaði 122 sætum á Danmörku og Íslandi á vormánuðum 2012 þegar íslenska landsliðið hafði fallið alla leið niður í 131. sæti á meðan Danir voru komnir inn á topp tíu (9. sæti). Þá voru meira að segja Færeyingar komnir upp fyrir okkur og Ísland því með lélegasta landsliðið á Norðurlöndum. Þetta hefur nú snúist við.

Vísir/Andri Marinó
Undir strákunum komið

Lars segir þessa stöðu skipta mestu máli hvað varðar styrkleikaröðun fyrir undankeppni HM þegar dregið verður 2016, en nú er það undir strákunum komið að halda sér svona ofarlega.

Hann viðurkennir fúslega að hann hafi ekki búist við svona góðum árangri, þó hann ætlaði sér alltaf að rífa liðið upp listann.

„Ef þú hefðir sagt þetta við mig þegar ég byrjaði hefði ég nú aðeins hikað, en ég vissi að við gætum komist á meðal fimmtíu bestu. Það hefur allt batnað í kringum liðið og leikmennirnir verða betri með hverjum leik,“ sagði Lars Lagerbäck við Fréttablaðið.

Sæti á stórmóti er draumurinn

Hér fyrir ofan má sjá graf sem sýnir þennan magnaða uppgang íslenska fótboltalandsliðsins á síðustu misserum. Stærsti draumurinn verður þó alltaf sæti á stórmóti en ekki gott sæti á FIFA-listanum.

Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×