Erlent

Vörubílsstjóri sýndi einstaka takta þegar bremsur eftirvagns festust

Samúel Karl Ólason skrifar
Myndband úr einum lögreglubíl sem fylgdi vörubílnum niður brekkuna sýnir hve erfitt þetta hefur verið.
Myndband úr einum lögreglubíl sem fylgdi vörubílnum niður brekkuna sýnir hve erfitt þetta hefur verið.
Lunkinn vörubílstjóri sýndi mikla takta í Kaliforníu í vikunni þegar bremsurnar á eftirvagni sem hann var að draga festust. Hann þurfti því að keyra með eftirvagninn á hlið niður bratta og hála brekku, til að komast út af þjóðveginum.

Myndband úr einum lögreglubíl sem fylgdi vörubílnum niður brekkuna sýnir hve erfitt þetta hefur verið. Einn lögregluþjónninn segir í talstöðina þegar bílinn er kominn niður brekkuna að hann hafi alls ekki átt von á því að þetta mundi heppnast.

Loka þurfti þjóðveginum í einungis tuttugu mínútur vegna atviksins og vörubílstjórinn gat haldið ferðinni áfram skömmu seinna eftir að hafa lokið viðgerðum á eftirvagninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×