Viðskipti innlent

Voru í vondri trú þegar þeir fengu Sushisamba skráð

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Eigendur veitingastaðarins Sushisamba voru í vondri trú í skilningi laga um vörumerki þegar þeir fengu nafnið Sushisamba skráð hjá Einkaleyfastofu. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar Íslands.

Samba LLC hefur rekið veitingastaði undir vörumerkinu sushisamba í Bandaríkjunum frá síðustu aldamótum. Fyrirtækið rak staði undir sama nafni í ýmsum öðrum löndum þegar Sushisamba ehf. fékk vörumerkið skráð hér á landið árið 2011 í flokki veitingaþjónustu.

Samba LLC höfðaði mál gegn Sushisamba ehf. til að gæta hagsmuna sinna en áður hafði félagið reynt að fá skráninguna fellda úr gildi hjá Einkaleyfastofu. Áður en Hæstiréttur Íslands kvað upp sinn dóm í gær hafði málið tapast fyrir héraði og fyrir áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Samba LLC hafi sannað með óyggjandi hætti að Sushisamba á Íslandi hafi vitað eða mátt vita um tilvist vörumerkisins Sushisamba þegar fyrirtækið fékk merkið skráð hér á landi og verið í „vondri trú“ í skilningi laga um vörumerki.

Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars:

„Vörumerkið sushisamba er orðmerki og er merkja- og þjónustulíking vörumerkja aðila því alger. Þá verður ekki horft fram hjá því að við samanburð á inngangstexta að matseðlum málsaðila um uppruna matargerðarinnar, sem sé að rekja til þess þegar þúsundir Japana hafi flust til Suður-Ameríku á fyrri hluta 20. aldar, er orðalag sláandi líkt.“

Þegar textinn á matseðli Sushisamba í Bandaríkjunum er borinn saman við textann á Sushisamba á Íslandi og fjallað er um í dómi Hæstaréttar sést að orðalag er næstum því nákvæmlega eins.

Skráning Sushisamba verður afmáð hjá Einkaleyfastofu og fyrirtækinu er gert að skipta um nafn og vörumerki. Þá þarf fyrirtækið að greiða Samba LLC eina og hálfa milljón króna í bætur fyrir hagnýtingu á hugverkaréttindum bandaríska fyrirtækisins og tvær milljónr króna í málskostnað fyrir héraði og Hæstarétti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×