Lífið

Voru hringa- og blómaberar fyrir mörgum árum og enduðu á því að gifta sig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adrian og Brooke með fjórtán ára millibili.
Adrian og Brooke með fjórtán ára millibili. vísir
Hjón eiga mörg hver mjög skemmtilegar sögur frá því þegar þau kynntust. Adrian og Brooke gengu í það heilaga á dögunum en þau höfði bæði gengið upp að sama altari fyrir 14 árum síðan.

Þá voru þau hringa- og blómaberar í brúðkaupi og þekktu hvort annað vel þar sem þau voru saman í skóla. Vinafólk foreldra þeirra var þá að gifta sig og vantaði krúttleg börn í verkefnið. Mörgum árum síðar giftu krakkarnir sig í sömu kirkju eða í South Gastonia Church of God í Kaliforníu.

„Ég varð strax skotin í honum,“ segir Brooke Franklin en Adrian segir að hann hafi ekki þolað eiginkonu sína í upphafi. Um 300 gestir mættu í brúðkaupið þeirra og meðal gesta var brúðurin úr brúðkaupinu sem fór fram árið 2001.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×