Glamour

Vorlína Rihanna og Puma innblásin af Marie Antoinette

Ritstjórn skrifar
Rihanna var hæstánægð með sýninguna sína.
Rihanna var hæstánægð með sýninguna sína. Myndir/Getty
Rihanna frumsýndi vorlínu sína í samstarfi við Puma í gærkvöldi. Sýningin fór fram í París að þessu sinni en seinast sýndi Rihanna í New York. Það er greinilegt hvers vegna Þau ákváðu að flytja sýninguna til Parísar þar sem línan sjálf er innblásin af Marie Antoinette. 

Mikið var um korsilett og mjúka pastel liti. Efnin voru ýmist úr blúndu eða þykku silkiefni en sportáhrifin í gegnum línuna leyndu sér ekki. 

Úr varð þessi skemmtilega lína sem er líkleg til vinsælda hjá tískuáhugafólki. Rihanna er ein af mest áberandi tískufyrirmyndum heims og hún er óhrædd við að fara ótroðnar slóðir og klæðast nýjum og óþekktum hönnuðum. 

Við höfum tekið saman nokkur af okkar uppáhalds dressum frá sýningunni hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






×