Erlent

Vopnuð lögregla rýmdi verslunarmiðstöð í Nice

Atli Ísleifsson skrifar
Verslunarmiðstöðin er vestan við miðborg Nice.
Verslunarmiðstöðin er vestan við miðborg Nice. Twitter
Vopnaðir lögreglumenn rýmdu verslunarstöðina Lingostière í franska bænum Nice skömmu eftir hádegi eftir að taska fannst með gashylkjum og hvellhettu.

Um tvö þúsund gestum verslunarmiðstöðvarinnar var vísað út.

Daily Mirror greinir frá þessu, en leikur Íslands og Englands í sextán liða úrslitum EM fer fram í borginni í kvöld.

Verslunarmiðstöðin er um þremur kílómetrum frá leikvanginum þar sem sem stórleikurinn fer fram.

Uppfært 14:45:

Verslunarmiðstöðin var aftur opnuð skömmu eftir klukkan 14.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×