Innlent

Vopnuð kona handtekin á Glerártorgi

Bjarki Ármannsson skrifar
Glerártorg á Akureyri.
Glerártorg á Akureyri.
Lögregla á Akureyri handtók fyrr í dag konu í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi sem vopnuð var hnífi. Hún er enn í haldi lögreglu og málið komið á borð rannsóknardeildar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er um að ræða andlega veika konu sem lögregla hefur áður haft afskipti af. Hún ógnaði starfsfólki í snyrtivöruverslun með hnífnum en slasaði engan.

Sérsveit lögreglunnar á Akureyri var kölluð út vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×