Innlent

Vopnaður maður braut sér leið inn í útsendingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd/skjáskot
Hollenskur maður, vopnaður byssu, braust í kvöld inn í byggingu hollenska ríkissjónvarpsins, NOS.

Maðurinn komst alla leið inn í útsendingaherbergi stöðvarinnar og vildi komast í beina sjónvarpsútsendingu. Þetta kemur fram í hollenskum miðlum í kvöld.

Um leið og atvikið átti sér stað var allri útsendingu frá stöðinni hætt. Ekki er ljóst að svo stöddu hvað manninum gekk til en hér að neðan má sjá myndbandsupptöku af atvikinu.

Hann var fljótlega handtekinn og gafst hann strax upp þegar lögreglan kom á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×