Innlent

Vongóður um að sjómenn samþykki einn besta samning sem þeir hafa fengið

Ásgeir Erlendsson skrifar
Formaður Sjómannasambands Íslands segir kynningar á nýgerðum kjarasamningi hafa gengið vel og hann vonist til að samningurinn verði samþykktur. Hann segir samninginn einn þann besta sem sjómenn hafi gert.

Flest aðildarfélög Sjómannasambandsins kynntu nýgerðan kjarasamning fyrir félagsmönnum sínum í gær og einhver félög standa fyrir kynningu í dag. Kosning um samninginn mun standa yfir til sex og gert er ráð fyrir að talning hefjist í húskynnum ríkissáttasemjara um kvöldmatarleytið. Úrslit kosninganna verða svo gerð kunn á níunda tímanum í kvöld. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, vonast til að samningurinn verði samþykktur.

„Eftir því sem að ég best veit þá held ég að það hafi gengið mjög vel. Ég var aðeins að hlera menn í gærkvöldi hvernig hefði gengið og almennt heyrist mér að það hafi gengið vel að kynna samninginn.“

Hvernig er hljóðið í sjómönnum eftir þessar kynningar?

„Það er svona bæði og finnst mér en mér finnst ég samt heyra fleiri jákvæðar raddir. Maður er bjartsýnn á að sjómenn samþykki þennan samning.“

Einn besti samningur sem sjómenn hafi fengið

Valmundur segir stóran áfanga hafa náðst með því að hafa tekist að hreyfa við olíuverðsviðmiði í frá fyrri samningi sem felldur var auk þess sem miklu muni að fæði verði endurgjaldslaust og útgerðin útvegi öryggis- og hlífðarfatnað. Samningurinn sé einn sá besti sem sjómenn hafi gert:

„Ég man ekki eftir svona samningi áður. Alveg frítt fæði, frír vinnufatnaður, internetkostnaður og svo koma bókanirnar í samningnum sem eru mikils virði. Að taka þennan kjarasamning okkar upp á nýtt og gera algjörlega nýjan samning. Það verður gert undir verkstjórn ríkissáttasemjara sem skipar okkur til verka sem eigum að sjá um þetta.

Verði samningurinn samþykktur geta skip haldið úr höfn á miðnætti. Spjallið við Valmund má heyra hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×