Vongóð um að fá að starfa sem læknir Viktoría Hermannsdóttir skrifar 19. janúar 2015 07:15 Liana er bjartsýn á að eitthvað sé að þokast í hennar málum og mögulega fái hún að starfa sem læknir hérlendis. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það lítur út fyrir að það gæti verið eitthvað að gerast, ég vona það,“ segir Liana Belinska, sem sagði sögu sína í Fréttablaðinu í lok nóvember. Liana er menntaður kvensjúkdómalæknir frá Úkraínu en hefur starfað á leikskóla í átta ár þar sem hún hefur ekki fengið menntun sína metna hérlendis, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Liana hafði fengið vilyrði fyrir því að komast inn í læknadeildina og taka síðustu þrjú ár læknanámsins gegn því að standast inntökupróf í deildina. Liana vildi hins vegar ekki taka inntökuprófið þar sem hún hefur þegar lokið námi og í prófinu er spurt um almenna þekkingu sem getur reynst þeim sem hafa ekki alist upp á Íslandi erfið.Jón Þór ÓlafssonEftir að viðtalið við Liönu birtist höfðu fjölmargir samband við hana, bæði fólk sem er statt í sömu aðstæðum og aðrir sem vildu sýna henni stuðning. Á meðal þeirra er þingmaðurinn Jón Þór Ólafsson sem vildi kynna sér málið til þess að reyna að hjálpa Liönu og öðrum í sambærilegri stöðu. Liana og eiginmaður hennar hittu Jón Þór sem fór svo í kjölfarið á fund forseta Læknadeildar Háskóla Íslands. Það er læknadeildin sem fer yfir umsóknir þeirra sem sækja um að fá læknaleyfi hérlendis eftir að landlæknir hefur sent umsóknina til þeirra. „Ég átti mjög uppljómandi spjall með honum og þeim aðila sem metur þetta. Í dag er það þannig að sitja þarf inntökupróf sem byggir líka á almennri þekkingu. Þessi almenna þekking miðar að þeim sem hafa alist upp á Íslandi eða búið hér mjög lengi þannig að það próf mismunar fólki,“ segir Jón Þór. Hann segist hafa fengið þær upplýsingar að til stæði að breyta fyrirkomulaginu en ástæðan fyrir inntökuprófinu væri meðal annars að koma í veg fyrir að fólk sleppti því að taka inntökuprófið, byrjaði námið erlendis og kæmi svo hingað og tæki restina af náminu. „Það er skref í rétta átt ef þessi almenni hluti verður minnkaður en til þess að fara alla leið með þetta þá væri best að taka alveg út þá þætti sem mismuna fólki í inntökuprófi á forsendu almennrar þekkingar,“ segir Jón Þór. Hann telur þetta vera mikið réttindamál fyrir þá sem koma hingað til lands og vildi komast að því hvað það væri sem stæði í vegi fyrir þeim sem fá menntunina ekki metna. Það kom einnig í ljós að hægt er að taka annað próf sem metur verklega kunnáttu lækna og kemur til greina að Liana fái að taka það próf. Hún mun fara á fund forseta læknadeildar síðar í þessum mánuði og er vongóð um að hún fái að starfa sem læknir hér einn daginn. „Ég ætla allavega að reyna, nú virðist eitthvað vera að gerast,“ segir Liana vongóð og spennt fyrir framhaldinu.
Tengdar fréttir Kvensjúkdómalæknir í vinnu á leikskóla í átta ár Kona sem er fædd í Úkraínu hefur búið hérlendis í ellefu ár án þess að fá starf sem hæfir menntun hennar. Hún vinnur á leikskóla og maðurinn hennar sem er menntaður í skurðlækningum vinnur í eldhúsi á spítala. 28. nóvember 2014 09:00 Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Fleiri fréttir Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Sjá meira
Kvensjúkdómalæknir í vinnu á leikskóla í átta ár Kona sem er fædd í Úkraínu hefur búið hérlendis í ellefu ár án þess að fá starf sem hæfir menntun hennar. Hún vinnur á leikskóla og maðurinn hennar sem er menntaður í skurðlækningum vinnur í eldhúsi á spítala. 28. nóvember 2014 09:00