Skoðun

Vönduð stefnumótun grunnforsenda markvissrar þjónustu náms- og starfsráðgjafa

Ingibjörg Kristinsdóttir skrifar
Í dag, 20. október, er Dagur náms- og starfsráðgjafar haldinn hátíðlegur í tíunda sinn. Markmið dagsins er annars vegar að vekja athygli á og kynna náms- og starfsráðgjöf fyrir almenningi og stjórnvöldum og hins vegar að skapa vettvang til að sameina og efla náms- og starfsráðgjafa. 

Að þessu sinni viljum við benda sérstaklega á mikilvægi vandaðrar stefnumótunar sem grunnforsendu markvissrar þjónustu náms- og starfsráðgjafa. Nú þegar hefur nokkur stefnumótunarvinna átt sér stað í samvinnu aðila frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, velferðarráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Félagi náms- og starfsráðgjafa og fleiri hagsmunaaðila. Í skýrslu starfshópsins er réttilega bent á að vegna mikilla breytinga á vinnumarkaði síðari ár sé náms- og starfsval mun flóknara ferli en áður. Í alþjóðlegu samhengi er það viðurkennd staðreynd að náms- og starfsráðgjöf gegnir lykilhlutverki í þessum breyttu aðstæðum, ekki síst vegna þess hve mikilvægt er fyrir ungt fólk að taka vel ígrundaðar ákvarðanir. Brotthvarf úr námi hefur í för með sér mikið óhagræði og kostnað bæði fyrir þá sem hverfa frá námi sem og þjóðfélagið allt. Samkvæmt tölum frá OECD er brotthvarf íslenskra ungmenna nú um 30% en það er mun hærra en í nágrannalöndum okkar. Náms- og starfsráðgjafar hafa lengi gefið þessu gaum og viljað leggja sitt af mörkum en rannsóknir sýna fram á ótvírætt forvarnargildi náms- og starfsráðgjafar og náms- og starfsfræðslu gegn brotthvarfi.

Alþjóðlegar breytingar á vinnumarkaði kalla einnig á aukna eftirspurn náms- og starfsráðgjafar fyrir fullorðna. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, símenntunarstöðvar, Vinnumálastofnun og aðilar sem koma að endurhæfingarmálum sinna þessum hópi sérstaklega. Í skýrslunni góðu er greint frá því að stjórnvöld hafi sett sér það markmið að ekki fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði verði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar árið 2020. Í ljósi þessa er mikilvægt að upplýsingar um nám og störf séu aðgengilegar, sem og þjónusta náms- og starfsráðgjafa.

Starfshópur um stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf skilaði af sér í maí 2015. Niðurstöðurnar hafa enn ekki fengið efnislega umfjöllun og úrvinnslu hjá stjórnvöldum.  Drög að stefnu um náms- og starfsráðgjöf á Íslandi liggja nú fyrir og næsta skref er að vinna áfram á þeim grunni sem kominn er.

Stórefld menntun og sterk tengsl á alþjóðavettvangi fagsviðsins skipa íslenskum náms- og starfsráðgjöfum í fremstu röð. Við erum reiðubúin að inna af hendi þann stuðning sem nemendur og atvinnuleitendur þurfa á að halda í dag með þeim augljósa þjóðhagslega ávinningi sem hann hefði í för með sér. Skýr stefnumótun og heildræn áætlun um hvar kröftum okkar er best varið er nauðsynleg í náinni framtíð. Því viljum við í tilefni Dagsins óska eftir frekara samtali við yfirvöld menntamála á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður.

Fyrir hönd stjórnar Félags náms- og starfsráðgjafa

Ingibjörg Kristinsdóttir, formaður

 




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×