Innlent

Vonast til að sigla í vikulokin

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Sandur hefur safnast upp í innsiglingu Landeyjahafnar og torveldað siglingar þangað.
Sandur hefur safnast upp í innsiglingu Landeyjahafnar og torveldað siglingar þangað. Fréttablaðið/Pjetur
Vonir standa til að búið verði að hreinsa nægilega innsiglingu Landeyjahafnar í vikulokin til þess að Herjólfur geti siglt þangað um helgina.

Þetta hafa Eyjar.net eftir Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í Eyjum.

„Eftir þennan vetur, sem farinn er að teygja sig inn á sumarið, er vonandi öllum ljóst að það þarf hvort tveggja, nýtt skip og breytingar á höfninni, og þá ekki síst í því sem snýr að dýpkun,“ er haft eftir Elliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×