Viðskipti innlent

Vonast til að fiskeldið hleypi þrótti í byggðir Austurlands

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fiskeldi Austfjarða sér fram á enn frekari uppbyggingu laxeldis og fjölgun starfa á Djúpavogi eftir að eitt reyndasta eldisfyrirtæki Noregs keypti helmingshlut í starfseminni.

Við höfum séð fiskeldi hleypa nýjum þrótti í byggðir á Vestfjörðum á undanförnum árum. Svo virðist sem hið sama geti gerst á Austfjörðum, - að minnsta kosti miðað við þau umsvif sem sjást um þessar mundir í Berufirði.

Frá eldiskvíum Fiskeldis Austfjarða á Berufirði.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
„Við erum, myndi ég segja, svona tveimur árum á eftir Vestfirðingunum og vonumst til að geta haft álíka áhrif og hafa verið fyrir vestan,“ segir  Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Fiskeldis Austfjarða, í viðtali í fréttum Stöðvar 2. 

„Það er allavega markmiðið. Við viljum frekar að hlutirnir gerist heldur en að segja að þeir muni gerast.“ 

Það hefur raunar ekki gengið þrautalaust hjá Fiskeldi Austfjarða að byggja upp starfsemina undanfarin þrjú ár. En nú segir Guðmundur að stór áfangi hafi náðst með innkomu norska fyrirtækisins MNH-Holding. 

„Við erum að fá traustan aðila sem fjárfestir í félaginu hjá okkur og er með gífurlega reynslu við eldi.“

Eldisfiskurinn er unninn í fiskvinnslu Búlandstinds á Djúpavogi.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Fiskeldi Austfjarða gerðist í fyrra helmingseigandi í Búlandstindi, sem vinnur eldisfiskinn, en með því tókst með öðru að verja fiskvinnslu á Djúpavogi. Guðmundur segir að með vinnslunni, sem hófst um áramótin, hafi starfsfólki þegar fjölgað um 30 manns og býst einnig við fjölgun starfa á næsta ári, kannski um 10-20 manns. 

Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, segir að ekki sjái fyrir endann á því hvað uppbygging fiskeldis geti orðið hröð. 

„Ég ætla bara að vona að mönnum takist vel til í þessum efnum,“ segir oddvitinn. 

Guðmundur segir Fiskeldi Austfjarða einstaklega heppið að allir innviðir skuli vera til staðar á Djúpavogi. Þar séu til dæmis rafvirkjar, fiskvinnsla, blikksmiðir og járniðnaðarmenn. Fyrirtækið hafi nánast ekkert þurft að sækja út fyrir Djúpavog í uppbyggingunni. 

„Hér eru öll skilyrði til fiskeldis eins og best verður á kosið,“ segir Andrés oddviti.

Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Tengdar fréttir

Norskir kaupa í laxeldi á Austurlandi

Norska eignarhaldsfyrirtækið MNH Holding AS kaupir­ 50% í Fiskeldi Austfjarða. Stefnt á stóraukið­ eldi á laxi í sjókvíum í Berufirði og Fáskrúðsfirði.­ Stefnt er að 24.000 tonna framleiðslu á næstu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×