Fótbolti

Vonast eftir veislu við heimkomu en helst sigurveislu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ingimundur, Guðjón Valur, Ólafur og Sverre með silfurverðlaunin við heimkomuna 2008.
Ingimundur, Guðjón Valur, Ólafur og Sverre með silfurverðlaunin við heimkomuna 2008. Vísir/Pjetur
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliðinn viðurkennir að hann sjái í hyllingum þegar strákarnir okkar snúa aftur til Íslands eftir Evrópuævintýrið í Frakklandi. Menn séu samt ekki að velta því fyrir sér núna af því strákarnir okkar séu ekki á heimleið strax. Þeir ætli að vinna mótið.

Eftirminnilegt er þegar karlalandsliðið í handbolta kom heim eftir silfrið á Ólympíuleikvanginum í Peking og tugir þúsunda fögnuðu með strákunum á Arnarhóli. 
Aron á von á að vel verði tekið á móti strákunum.

„Já, ég held það. Við ætlum náttúrulega fyrst og fremst að vinna þetta. Þá verður þetta ennþá betra partý,“ segir Aron Einar. Menn séu samt ekki að pæla í því þessa stundina.

„Maður sér þetta náttúrulega í hyllingum og væri gaman að þakka öllum fyrir,“ segir fyrirliðinn. Strákarnir séu vel meðvitaðir um að fólk sé búið að borga háar fjárhæðir til að koma út og fylgjast með landsliðinu.

„Að þeir komi og taki þátt í þessu með okkur, er svakalega skemmtilegt og okkar heiður,“ bætir hann við og rifjar upp heimkomu handboltastrákanna.

„Það verður að koma í ljós hvort þessi dagur verði svo skemmtilegur, ég vona það. Hvenær það verður veit enginn en hann verður vonandi.“

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur áFacebook,Twitterog Snapchat (sport365).



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×