Erlent

Vonast eftir stuðningi

Freyr Bjarnason skrifar
Barack Obama kemur í opinbera heimsókn til eistlands í dag.
Barack Obama kemur í opinbera heimsókn til eistlands í dag. Fréttablaðið/AP
Eistlendingar vonast til að fá mikinn stuðning frá Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, þegar hann kemur í opinbera heimsókn til landsins í dag.

Eistlendingar hafa áhyggjur af íhlutun Rússa í Úkraínu þar sem mikil átök hafa verið að undanförnu. Önnur Eystrasaltsríki hafa deilt með þeim þessum áhyggjum.

„Bandaríkjamenn eru að senda frá sér mjög sterk skilaboð með því að líta öryggismál samherja sinna í NATO alvarlegum augum,“ sagði eistneski hershöfðinginn Riho Terras.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×