Erlent

Vonast eftir góðum samningi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESwB, tekur við úrsagnarbréfi frá fastafulltrúa Bretlands, Tim Barrow.
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESwB, tekur við úrsagnarbréfi frá fastafulltrúa Bretlands, Tim Barrow. vísir/epa
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, tók í gær við bréfi frá Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, þar sem hún óskar formlega eftir úrsögn Bretlands úr ESB.

„Hvað get ég sagt?“ sagði hann. „Við söknum ykkar nú þegar.“

Hann sagðist ekki geta verið ánægður á þessum degi, en tók þó fram að útganga Bretlands, Brexit, hefði sitthvað jákvætt í för með sér: „Brexit hefur gert okkur ákveðnari og samhentari en áður,“ sagði hann.

Fram undan er tveggja ára ferli með flóknum samningaviðræðum, en Tusk sagði markmið viðræðnanna vera að lágmarka allan kostnað fyrir íbúa Evrópusambandsins, fyrirtæki þess og aðildarríkin.

Nigel Farage.vísir/EPA
„Við áttum okkur á því að það hefur afleiðingar að Bretland segi skilið við ESB,“ sagði hún í bréfi sínu til Evrópusambandsins. „Við vitum að við munum missa áhrif á þær reglur sem móta efnahagslíf Evrópu. Við vitum að bresk fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við ESB munu þurfa að laga sig að reglum sem settar eru af stofnunum sem við eigum ekki lengur aðild að, rétt eins og við gerum á markaðssvæðum annars staðar. Við föllumst á það.“

Hún sagði Breta ekki óska eftir aðild að Evrópska efnahagssvæðinu og tók fram að hún skildi vel að ESB gæfi engan afslátt af fjórfrelsinu.

Hins vegar vonist hún til þess að eftir aðskilnaðinn verði samband Bretlands og Evrópusambandsins „djúpt og sérstakt“, eins og hún orðar það. Meðal annars vonast hún til þess að Bretland og ESB geti gert „djarfan og metnaðarfullan“ samning um frjáls viðskipti: „Hann ætti að verða víðtækari og metnaðarmeiri en nokkur slíkur samningur sem áður hefur verið gerður.“

Nigel Farage, fyrrverandi leiðtogi UKIP-flokksins og um árabil helsti baráttumaðurinn fyrir útgöngu Bretlands úr ESB, sagðist vera himin­lifandi: „Í dag er draumurinn um hið ómögulega að rætast.“

Michel Barnier, fyrrverandi utanríkisráðherra Frakklands, verður aðalsamningamaður Evrópusambandsins í viðræðunum við Bretland. Breska dagblaðið The Independent fullyrðir, en vitnar í ónafngreindan heimildarmann, að Barnier hafi krafist þess að viðræðurnar við Breta fari fram á móðurmáli hans, frönsku, og jafnframt verði öll skjöl í tengslum við þessar viðræður á frönsku.

Bretar þurfa því að styðjast við skjalaþýðingar og túlka, sem ESB greiðir að vísu kostnaðinn af. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×