Enski boltinn

Vonarglæta fyrir Rooney

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rooney á æfingunni í morgun.
Rooney á æfingunni í morgun. Vísir/Getty
Óvíst er með þátttöku Wayne Rooney í úrslitaleik enska deildabikarsins um helgina en hann hefur ekki spilað með Manchester United síðan í upphafi mánaðarins.

Jose Mourinho, stjóri United, sagðist um helgina ekki vita hvort að Rooney yrði klár í slaginn fyrir leikinn gegn Southampton á sunnudag.

Sjá einnig: Rooney tæpur fyrir úrslitaleikinn

United á enn fremur leik gegn Saint-Etienne í Evrópudeild UEFA á morgun en líklegt er að hann verði hvíldur í þeim leik enda United með 3-0 forystu eftir fyrri viðureign liðanna.

Manchester Evening News greindi frá því að Rooney hafi verið í hópi tíu leikmanna sem æfðu í dag. Meðal annarra leikmanna á æfingunni voru Henrikh Mkhitaryan, Anthony Martial og Marcus Rashford.

Ander Herrera tók ekki þátt í æfingunni en hann mun taka út leikbann í leiknum gegn Saint-Etienne á morgun. Phil Jones var heldur ekki með vegna meiðsla.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×