Bíó og sjónvarp

Vonar að mamma og pabbi sjái ekki myndina

Dakota Johnson
Dakota Johnson Vísir/Getty
„Ef að þau væru að leika í myndinni, myndi ég ekki vilja sjá hana,“ segir Dakota Johnson, sem leikur í hinni væntanlegu kvikmyndaaðlögun af bókinni geysivinsælu 50 Shades of Grey eftir E.L. James.

Dakota er dóttir leikaranna Melanie Griffith og Don Johnson, en hún var gestur The Today Show í gær.

Í viðtalinu sagði hún þáttastjórnandanum Savannah Guthrie að hún vildi ekki að foreldrar hennar sæju myndina.

„Bara alls ekki.“

Johnson leikur Anastasiu Steele, saklausa háskólastelpu sem byrjar með milljarðamæringnum Christian Grey.

Don Johnson og Melanie Griffith árið 1995





Fleiri fréttir

Sjá meira


×