Margrét og þjálfarinn. Margrét Lára Viðarsdóttir sést hér ásamt Bernd Schröder, þjálfara Potsdam, sem hún segir að hafi trú á sér. Mynd/NordicPhotos/Bongarts
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Margrét Lára Viðarsdóttir komst í gær í undanúrslit Meistaradeildarinnar með þýska liðinu Turbine Potsdam. Margrét Lára spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðsli og vill ekki tjá sig um umdeild ummæli þjálfara síns hjá Potsdam.
Það lítur allt miklu betur út hjá landsliðskonunni Margréti Láru Viðarsdóttur eftir erfiðar vikur upp á síðkastið þar sem meiðsli hennar tóku sig upp aftur. Þjálfarinn missti sig í fjölmiðlum og Margét missti bæði af landsleikjum og leikjum Potsdam.
Margrét Lára spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðslin í gær þegar hún kom inn á sem varamaður í 3-0 útisigri á rússneska liðinu Rossiyanka í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Turbine Potsdam vann samanlagt 5-0.
Gott að komast inn á völlinn „Þetta er bara frábært að við erum komnar áfram. Við spiluðum mjög vel í báðum þessum leikjum og í raun átti þetta rússneska lið aldrei möguleika. Nú bíða Evrópumeistarar Lyon í undanúrslitunum," segir Margrét Lára sem var ánægð með leikinn.
„Mér gekk bara vel. Ég var að finna mig vel og fékk einhverjar tuttugu mínútur. Það var gott að komast inn á völlinn aftur því ég er búin að vera svolítið frá. Það er alltaf erfitt að koma inn á og fá smá spilatíma. Vonandi get ég haldið áfram að standa mig og meiðslin verði til friðs," segir Margrét Lára.
„Þetta er svolítið undir meiðslunum komið. Þetta lítur betur út. Ég er búin að vera í hópnum í síðustu tveimur leikjum og þetta er allt að koma. Ef við náum að stjórna álaginu á mér þá er þetta hægt og mér eru þá allir vegir færir," segir Margrét Lára.
Karlinn hefur trú á mér Bernd Schröder, þjálfari hennar hjá þýska liðinu, var mjög óánægður með ástandið á landsliðsframherjanum eftir að hún meiddist og hélt því fram að það virtist ekki vera hefð fyrir því að æfa á Íslandi.
„Ég hef ekkert um það mál að segja. Ég er bara hérna til að æfa og spila og ætla bara að halda áfram að einbeita mér að því," segir Margrét Lára en er Schröder nokkuð leiðinlegur við hana?
„Hann er fínn karlinn. Það eru gerðar kröfur hér en ég veit að hann hefur mikla trú á mér og ég fer með það með mér í hvern leik og á hverja æfingu. Svo vonum við bara að meiðslin séu til friðs og ég geti farið að spila fleiri mínútur með hverjum leik. Það eru öðruvísi áherslur hér en maður er vanur en ég held að það sé bjart fram undan. Við erum að berjast um titla á öllum vígstöðvum og þetta er bara gaman," segir Margrét Lára.
„Ég var á rosalega góðu róli í undirbúningsleikjunum og það gekk rosalega vel. Ég held að ég hafi verið markahæsti leikmaður liðsins á undirbúningstímabilinu. Maður missir samt alltaf spilaform og annað þegar maður spilar ekki í tvær til þrjár vikur. Það er eitthvað sem ég get vonandi unnið í næstu daga og vikur. Ef þeir eru tilbúnir að stjórna álaginu á mér þá hef ég engar áhyggjur," segir Margrét.
Þurfa að æfa eins og meistarar „Það er mikið eftir og eins og þjálfarinn segir þá þurfum við að æfa eins og meistarar á hverjum degi og vinna fyrir þessu," segir Margrét Lára en hún varð í gær fyrsta íslenska knattspyrnukonan sem kemst svona langt.
„Ég er stolt af því og vonandi get ég líka orðið fyrst til að vinna Meistaradeildina," segir Margrét Lára. Turbine Potsdam mætir næst Essen í þýsku deildinni.
„Það er búið að vera mikið álag á mannskapnum og það er spurning hvort það fái ekki einhver ný andlit að spreyta sig á sunnudaginn. Það væri gaman," segir Margrét Lára að lokum.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Hoffenheim vann dramatískan 2-1 sigur á Borussia Dortmund í síðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar sem leikinn var í dag. Liðið á því enn möguleika á að halda sæti sínu í deildinni.
Meira
Bayern München er líklega besta lið Evrópu í dag. Liðið gerir allt rétt innan vallar og liðið virðist vart misstíga sig utan vallar heldur. Mikið er kvartað yfir miðaverði á leiki í ensku úrvalsdeildi...
Meira
Þýska liðinu Dortmund hefur gengið illa að halda lykilmönnum sínum á síðustu árum en stærstu stjörnur liðsins undanfarin ár hafa oftar en ekki haft vistaskipti eftir að hafa slegið í gegn hjá félaginu...
Meira
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur gefið það í skyn að hann hafi áhuga á því að klófesta Robert Lewandowski frá Borussia Dortmund í sumar en leikmaðurinn hefur farið á kostu...
Meira
Andre Schürrle gæti verið á leiðinni til enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea í sumar. Íþróttastjóri Bayer Leverkusen hefur staðfest viðræður félaganna.
Meira
Bayern Munchen vann ótrúlegan sigur á Hamburger SV, 9-2, í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og má svo sannarlega segja að liðið hafi niðurlægt Hamburger á Allianz-vellinum.
Meira
Hinn málglaði forseti Bayern München, Uli Höness, sendir eigendum knattspyrnuliða sem tengjast félögum sínum engum böndum tóninn í dag. Honum er illa við eigendur sem hugsa bara um peninga.
Meira
Frakkinn Franck Ribery, leikmaður Bayern München, segir að sitt félag sé komið í þá stöðu að geta keppt við Barcelona, Real Madrid og önnur stór félög um stærstu bitana á leikmannamarkaðnum.
Meira
Gengi Bayern München hefur verið frábært í vetur. Liðið er að rúlla upp þýsku deildinni, er komið í undanúrslit bikarkeppninnar og er með annan fótinn í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Meira
Dortmund missteig sig enn á ný í þýsku deildinni er liðið gerði 1-1 jafntefli við Gladbach á útivelli. Mario Götze kom Dormund yfir úr víti á 31. mínútu en Amin Younes jafnaði leikinn fyrir Gladbach á...
Meira
Brasilíumaðurinn ungi, Neymar, er orðaður við fjölda félaga í Evrópu um þessar mundir en eitt er orðið ljóst. Hann fer ekki til þýska liðsins Bayern München.
Meira
Philipp Lahm, fyrirliði Bayern München, bíður spenntur eftir komu spænska þjálfarans, Pep Guardiola, til félagsins. Hann tekur við liðinu næsta sumar.
Meira
Spánverjinn Pep Guardiola er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við þýska félagið Bayern München eins og flestum ætti að vera kunnugt um. Stjórnarformaður félagsins segir að Guardiola hafi ekki...
Meira
Þýska B-deildarliðið 1860 München gaf það út á heimasíðu sinni í gær að Svíinn Sven-Göran Eriksson væri orðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Svíinn segist koma af fjöllum.
Meira